Forsíða
61.132 greinar á íslensku.
Írena frá Aþenu
Írena frá Aþenu var austrómversk keisaraynja. Hún var gift Leó 4., sem var keisari frá 775 til dauðadags árið 780. Eftir dauða Leós var Írena ríkisstjóri austrómverska keisaradæmisins frá 780 til 790 á meðan sonur hennar, Konstantínus 6., var ómyndugur. Þegar Konstantínus lést árið 797 varð Írena sjálf ríkjandi keisaraynja frá 797 til 802.
Írena keisaraynja var fyrsta konan sem fór formlega með völd í austrómverska keisaradæminu. Hún átti meðal annars frumkvæði að því að kalla saman annað Níkeuþingið og fyrir því að stöðva helgimyndabrot tímabundið. Hún var einnig þekkt fyrir rausnarlega efnahagsstefnu sína og fyrir að vera sérlega vinsamleg gagnvart klaustrum. Hún naut ekki eins mikillar virðingar í Vestur-Evrópu. Bæði Leó 3. páfi og Karlamagnús Frankakeisari töldu það viðurstyggð að kona færi með pólitísk völd og neituðu báðir að viðurkenna vald hennar sem keisaraynju Býsansríkisins.
Vissir þú...

- … að Ferdinand 1. Búlgaríukeisari var fyrsti þjóðhöfðinginn sem flaug um borð í flugvél?
- … að flestir fræðimenn telja að tala dýrsins, 666, í Opinberunarbók Jóhannesar, vísi til Nerós Rómarkeisara?
- … að Joseph Merrick, öðru nafni fílamaðurinn (sjá mynd), fékkst við að smíða vönduð smálíkön af byggingum úr pappa?
- … að talið er að yfir 800.000 Indverjar hafi látið lífið í hefndaraðgerðum Breta gegn uppreisninni á Indlandi árið 1857?
- … að kirkjan á Íslandi heyrði undir Erkibiskupsdæmið í Bremen frá stofnun fram til 1104 þegar erkibiskupsdæmið í Lundi var stofnað fyrir kirkjur Norðurlanda?
Fréttir

- 8. júlí: Vopnahléi lýkur í Íransstríðinu.
- 29. júní: Keiko Fujimori (sjá mynd) vinnur forsetakosningar í Perú.
- 26. júní: Að minnsta kosti 1.400 manns farast eftir jarðskjálfta í Venesúela.
- 22. júní: Keir Starmer segir af sér sem forsætisráðherra Bretlands.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Lindsey Graham (11. júlí) • Bonnie Tyler (8. júlí) • Megas (6. júlí) • Þrúður Vilhjálmsdóttir (5. júlí)
12. júlí
- 2006 - Evrópuráðið sektaði Microsoft um 280 milljónir evra fyrir að neita að gefa upp tæknilegar upplýsingar um stýrikerfið.
- 2011 - Reikistjarnan Neptúnus lauk við fyrstu ferð sína umhverfis sólu frá því hún var uppgötvuð.
- 2013 - Malala Yousafzai ávarpaði Sameinuðu þjóðirnar í New York á 16 ára afmælisdegi sínum og krafðist réttinda til menntunar fyrir alla.
- 2016 - 23 létust þegar tvær lestar rákust saman rétt hjá Bari á Ítalíu.
- 2017 - Fyrrum forseti Brasilíu, Lula da Silva, var dæmdur í 9 og hálfs árs fangelsi fyrir spillingu.
- 2019 – Árásin á Asasey Hotel: 26 létust þegar bílsprengja sprakk og árásarmenn hófu skothríð á Asasey Hotel í Kismajó í Sómalíu.
- 2020 - Flóðin í Kína 2020: 141 voru taldir af eða týndir og 28.000 heimili eyðilögðust.
- 2021 - Flóðin í Evrópu 2021: 229 fórust í Þýskalandi, Belgíu og Rúmeníu eftir miklar rigningar og flóð.
Systurverkefni
|
|